Hótel Breiðdalsvík
Gjafabréf
Gefðu notalega dvöl, góðan mat og kyrrð Austfjarða. Gjafabréfin berast rafrænt um leið og greitt er og gilda í 48 mánuði.
Svona virkar það
Þú velur gjafabréf, greiðir með korti á öruggri síðu Reserva og færð gjafabréfið sent í tölvupósti á nokkrum mínútum. Þú getur prentað það út eða áframsent beint til þess sem á að fá það.
Að nýta gjafabréfið
Handhafi hefur samband við hótelið í síma 470 0000 eða á info@hotelbreiddalsvik.is, bókar dagsetningu og framvísar gjafabréfinu við komu. Gjafabréfin gilda í 48 mánuði frá kaupdegi.
Fyrirtæki og hópar
Ertu að leita að gjöf fyrir starfsfólk eða viðskiptavini? Hafðu samband og við setjum saman gjafabréf sem hentar, hvort sem það er fyrir tvo eða tuttugu.



